Ísland geri það sama

Mér finnst alveg kjörið að ísland ætti að gera það sama.  Fólk er yfirleitt ekki að fara langar vegalengdir þannig að þetta gæti hagstætt að vera með rafmagnsbíla.  Snattast útum allar trissur á daginn og stinga bílnum svo í samband á nóttinni.

Það eru fyrirsjáanlegar framfarir í ragmagnsbílum.   Teslamotors er að koma með sportbíl sem er með hleðslu sem dugar í uþb 400 km.  Þeirra bíll er 3.9 sekúndur að ná 100km hraða.

Mér dettur í hug að einhverjir aðilar (td Orkuveitan...) setji sig í samband við bílaframleiðendur og Better Place um samstarfverkefni um þetta.

Og það er enn eftir að nýta fleiri virkjanakosti.  Rafmagnið er okkar olía. 

Ég er þrátt fyrir það alfarið á móti Bitruvirkjun.  Hellisheiðarvirkjun er uþb 20 km frá Rauðavatni,  og það eru margir í Reykjavík og Kópavogi sem kvarta undan lykt og mengun.  Bitruvirkjun er aðeins 4.5 km frá Hveragerði.

 


mbl.is Hawaii rafbílavæðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er alveg sammála. Sá sem kemur þessu í gang fær mitt atkvæði.

Ívar (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 08:06

2 identicon

Sælir.

Rafmagnsbílar eru í sölu á Íslandi - ég held ég hafi hreinlega hvorugan ykkar fengið til mín í reynsluakstur.  Eiga kannski bara aðrir að kaupa sér rafmagnsbíla en ekki þið?  (-:

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 10:50

3 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Bragi: Hvenær kemur rafhlaða í svona bíl sem er meira en 200km?  Ég er að keyra á hverjum degi uþb 100-120km og mér sýnist þar með REVA ekki vera með lausn fyrir mig.

Jón Á Grétarsson, 6.12.2008 kl. 14:17

4 identicon

Sæll, Jón.

1) Til hvers þarftu 200km drægi ef þú keyrir 100-200 km á dag?

2) Það er lítið mál fyrir þig að fá slík batterí bara strax í dag.  Þau kosta bara meira en hin, eins og gengur.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 17:02

5 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Suma daga fer maður reyndar 150 km Bragi, og svo er aldrei að vita nema maður þurfi að fara eitthvað aukalega.

Jón Á Grétarsson, 7.12.2008 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband