Sumarið er tíminn ...

Þetta er búið að vera fínasta sumar og maður frekar latur við að blogga.  Ég var með krakkana á 17.jún sem var frábær hérna í Hveró, algert mæjorkaveður og mikið líf.  Hara systurnar stóðu fyrir skemmtunum í sundlauginni þar sem flestir bæjarbúar mættu.

Svo var farið út í Flatey með krökkunum og farið í ævintýraferðir um kríuvarp og fleira í þeim dúr.  Það sést í myndaalbúmminu.  Aron fór út á sjó með afa sínum og öðrum og var fiskað 96 þorskar á 3 tímum sirka.  Góður afli það! Hann brann svo öðru meginn i andlitinu en hárið bjargaði hinum hlutanum en þetta var yfir hádegið og logn og sól og mitt sumar.

Svo var tekinn rúntur á Ísafjörð og svo ættarmót í Sælingsdal seinna um sumarið. Það var langamma föðurmeginn sem var tilefnið og var vel sótt.  Það spáði rigningu þannig að ég hætti við að vera í tjaldi en svo var þurrt alla helgina. Rebekka var fljót að  kynnast krökkum á svipuðu reki.

Blómstrandi dagar voru núna síðustu helgi og mikið fjör í Hveró. Hoppikastali, markaður, hundasýning, sniglabandið leikir og fjör.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband