Skrifar enginn gegn þessu á BBC?

Er enginn sem mótmælir þessu á BBC og leiðréttir söguna?

Núna virðast skotar ætla að sparka í  "liggjandi" þjóð með svona rausi.

Mér finnst að einhver ætti að skrifa um þetta og útskýra málin sem hefur vit á þessu.   Eins og einhverjir fagaðilar til dæmis, utanríkisráðuneytið, sendiráðið (dýra) í London, útgerðarmenn, og önnur samtök, ASÍ, BSÍ eða hvað þetta allt heitir.


mbl.is Saka Íslendinga um ofveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég ætla bara rétt að vona að þessu verði svarað!

Sporðdrekinn, 10.11.2008 kl. 20:44

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Íslendingar eru búnir að haga sér eins og villimenn í þessum veiðum, eins og víðar, ef því verður við komið. Að láta LÍÚ reyna einhverja réttlætingu á þessum bræðslumokstri er eins og að láta Lalla Johns réttlæta Árna Johnsen.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.11.2008 kl. 21:44

3 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Hafsteinn: Það er mikill misskilningur að þeir séu að veiða í bræðslu.  Flestir eru farnir að frysta aflann til manneldis og einstaka skip eins og Huginn vinna aflann um borð.  Makríllinn hefur veiðst í haust til helminga móti síld.  Þ.e. þeir hafa fengið í sama halinu 50% makríl á móti 50 % síld.

Þú ættir allavega að kynna þér málin áður en þú kemur með svona athugasemdir.

Já og ekki gera lítið úr Lalla Johns !

Jón Á Grétarsson, 11.11.2008 kl. 08:37

4 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Hafsteinn: Sjá td þessa frétt

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/11/unnid_a_voktum_i_vestmannaeyjum/

Jón Á Grétarsson, 11.11.2008 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband