18.11.2008 | 20:57
Göngum frekar í ASB
Við ættum mikið frekar að ganga í ASB (Asíusambandið) frekar en ESB. Já og í framhaldi af því taka upp yenið. Þá getum við haldið áfram að veiða hvali ótakmarkað og eigum trygga markaði fyrir kjötið (ef það verður einhver afgangur.)
Evrópusambandið vill hvort er ekki leyfa okkur að nota evruna nema að uppfylltum ströngum skilyrðum eins og ábyrgri fjármálastjórn og þess háttar böggi.
Ef það er ekki vilji til að ganga í ASB eða okkur ekki hleypt þanngað þá er alltaf hægt að sækja um aðild að KGB. Og leyfa rússum að nota flugvöllinn hérna annað slagið. Það væri ekki nema sanngjarnt.
Gætum þurft að hætta hvalveiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.