Hefur ekki kjark

Tryggvi Þór, Sigmundur Davíð og Lilja Mósesdóttir eru menntaðir hagfræðingar sem hafa verið kosnir á þing sem hafa haldið þessari hugmynd uppi.  Það er svipuð leið sem Þór Saari sem er líka menntaður hagfræðingur hefur komið með útfærslu á.

En svo kemur flugfreyjan Jóhanna og segir að þetta sé arfavitlaust?  Ekki vissi ég að hún væri með hagfræðiþekkingu?  Eða jarðfræðingurinn Steingrímur?

Við ættum að hlusta á þetta góða fólk sem við höfum kosið á þing (Tryggva, Sigmund, Lilju og Þór) sem hefur þekkingu á efnahagsmálum!

Gylfi Magnússon var ekki kosinn af okkur.  Af hverju ætti hann að ákveða þetta?

Hérna er lýðræðið að ulla á okkur.


mbl.is Viðskiptaráðherra skoðar niðurfærslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gylfi Magnússon lýsti því yfir í sjónvarpi skömmu áður en hann varð ráðherra að útilokað væri að komast hjá því að afskrifa eitthvað af skuldum heimila og fyrirtækja strax og ekki væri eftir neinu að bíða með það. 

Hann tók sérstaklega fram að ef menn gerðu ekki eitthvað í þessum málum strax þá kæmi það til með að skapa mun meiri erfiðleika seinna. 

Flugfreyjan og jarðfræðingurinn hafa greinilega gert honum grein fyrir hversu slakur hann er í "faginu"      

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 00:21

2 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Góður punktur Páll.  Svo gera þau kröfur um að seðlabankastjórn sé með ákveðna menntun, ekki gera þau sömu kröfur um ríkistjórnina.

Jón Á Grétarsson, 1.5.2009 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband