Eigur ríkissins (okkar)

Þarna kom það. 

Þetta er örugglega auðvirðulegasti samningur sem gerður hefur verið fyrir Íslands hönd. 

Jón Sigurðsson og margir fleiri munu snúa sér í marga hringi í gröfinni. 

Nokkrir augljósir púnktar:

* Það  leikur efi á að við (íslenskur almenningur = ríkið) eigum að borga iceslave reikningana.

* Eignir Landsbankans úti metnar á 75-95% af því sem innistæðutryggingar ná til.  Mér finnst að þeir ættu þá að geta hirt þessar eignir og látið gott heita. 

* Að enskir dómstólar skeri úr með ágreining er óásættanlegt.  Það þarf að vera algerlega hlutlaus dómstóll sem dæmir um ágreining.

* Að erlendir aðilar geta gengið að eigum ríkissins (eignum okkar) er líka óásættanlegt.  Ekki stofnuðum við reikninga erlendis heldur einkarekið fyrirtæki. Hvað verður metið sem eigur ríkissins?  Auðlindirnar? Orkan? Fiskurinn í sjónum?

Manni verður jafn óglatt að lesa þessa frétt eins og þegar maður sá glottið á Steingrími J. í heila viku þegar það var verið að mynda minnihlutastjórnina í vor. 

Vanhæf ríkisstjórn?   Ekki spurning.

Að lokum legg ég til að ríkisstjórnin segi af sér.

 


mbl.is Enskir dómstólar skera úr Icesave-deilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Algjörlega sammála þér og ef fólk fannst það mæta hörku þegar það pipar og gasi var úðað á það eins og enginn væri morgundagurinn í mótmælum í vetur þá verður tekið ennþá harðara á þeim núna, gott dæmi er þegar nokkrir voru með borgaralega óhlýðni um daginn, því var stungið í steininn, kommar eru ekki þekktir fyrir lýðræði og láta enga koma sér frá völdum, guð blessi Ísland og fordæmi komma.

Sævar Einarsson, 17.6.2009 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband